Wednesday, May 24, 2006

Við í hljómsveitinni spiluðum á grandrokk síðasta laugardag ásamt I Adapt og Innvortis, og var það svona ómannlega skemmtilegt. I Adapt voru svakalega sterkir, og Innvortis var tær snilld. Mér fannst líka svona helvíti gaman að spila þegar hljóðið var svona drullu vel blandað. :) Annars fyrir utan það er ég búin að vera að vinna eins og vitlaus síðustu þrjár vikur og hef gefið mér lítin tíma í annað en það. Ég fékk 9,5 fyrir lokaverkefnið mitt sem er mjög gott þar sem mér skillst að það sé ekki gefið 10 fyrir lokaverkefni, en fyrir utan góðu einkunnirnar mínar þessa önn, kom upp smá vandamál með einingarnar sem voru metnar að utan. Þær voru ekki búnar að fara í gegn um allt sitt pappírs ferli því að einhver konan hringdi í mig frekar furða yfir því að ég væri skráður í útskrift... argh. Nú ef það fer svo að ég fæ þetta bara ekki í gegn og ég þurfi að taka 10 einingar næstu önn, gerir það lítið til þar sem ég hefði hvort sem er tekið eitthvað fag þá önnina fyrir meistaranámið sem ég sótti um í. Jæja... ég þarf að fara að kjósa og borða.

tata

Saturday, May 06, 2006

Jæja, ég er búin með fyrstu vikuna í nýju vinnunni minni og er búið að vera þetta helvíti gaman. Gleymi mér frekar yfir því sem ég er að gera sem er nú gott mál þar sem maður þarf nú að vera sem afkastamestur þegar meður er að forrita.
Ég fékk 10 í tölvugrafík, sem er nú bara helvíti gott finnst mér. Var búin með allar 6 spurningarnar í prófinu um 11:30, semsagt hálftíma fyrir próflok og man ekki eftir því að hafa klárað próf frá Hjálmtýr á styttri tíma. Annars er maður að fara í afmælisveislu í kvöld, þar sem Eve-Online er orðin þriggja ára gamall. Þar mun verða hellings matur og alls kyns skemmtilegheit.

Best að maður hafi sig til fyrir stuðið ;)

Ta ta

Wednesday, May 03, 2006

Jæja, nú er próftíðin hjá mér búin. Búin að taka þetta eina próf sem ég var skráður í og stóð mig bara nokkuð vel, en kennarinn á eftir að fara yfir þetta og hann gæti nú verið á öðru málið með það. Síðan er maður nú að reyna að jafna sig eftir pínu flensuskít sem lét sjá sig á mánudagskvöldið, en það er hins vegar ekki svo alvarlegt, bara pínu hiti og hor, en samt nóg til að gera mann drullu þreittann. Frá og með morgundeginum fær maður borgað við það að vinna í lokaverkefninu sínu og mörgu öðru sem tengist tölvugrafík, með því skilyrði að ég mæti á ákveðinn stað á ákveðnum tíma og skili að minnsta kosti 8 tímum á dag,.. það ætti nú að vera lítið mál. Svona til að halda upp á lokin á grunnáminu í tölvunarfræðinni mun ég mæta á próflokadjamm nemandafélagsins nörd þann 15. Maí. Þar verður Lottó með fullt af sniðugum vinningum og svo er verið að spá í að halda forritunarkeppni í esoteric forritunarmálum eins og Brainfuck og Ook!. En hinsvegar eru nú til skrítnari forritunarmál en þetta, t.d. shakespear, whitespace og chef. Ekkert af þessu er þó nothæft af neinu viti, en virkar samt sem helvíti gott grín fyrir hvern sem forritar eitthvað af viti.

Komið nóg í bili..